.:The sense of Didda:. | |
01 apríl 2004 Heil Hitler!...Og allir hinir að sjálfsögðu! Í dag eru nákvæmlega 59 dagar og þá ca 1416 klukkustundir síðan hér hefur eitthvað verið párað. ...Þá er 60 daga reglan farin fyrir ekki neitt! Vegna fjölda áskoranna (frá sjálfri mér) ákvað ég að láta undan og skrifa. ...Og skrifa og skrifa og skrifa og skr.... Þó ég viti sjálf að ég er óttalegur kjáni og vitleysingur og geri ýmsa hluti sem öðrum kannski dettur ekkert endilega í hug... Þá ég ég það þó til að koma sjálfri mér óvart og kannski vita ekki alveg hvernig ég á að koma mér út úr þeim aðstæðum sem ég hef komið sjálfri mér í. Látum okkur nú sjá. Ég var veik um daginn, með hita og hor. Og mér varð hugsað til þess hversu miklu "notalegra" það var að vera veikur þegar maður var lítill... þið vitið, allir að stjana við mann. Manni var fært hitt og þetta upp í rúm. Manni var snýtt. Maður var mældur. Maður þurfti hreinlega ekkert að gera sjálfur. Þá fór ég að hugsa (sem ég hefði kannski betur sleppt).. hmm.. mig langar að láta snýta mér. ...Neibb, sorry, enginn heim! Þá fór ég aftur að hugsa (Guð hvað ég vildi að ég hefði bara getað sofnað!).. hmm.. hvernig ætli sé að láta mæla sig með rassmæli?!?!?!?! ...Guð Minn Góður. Afhverju geymir fólk rassmæla þar sem börn ná til?!?!?!? Þessu verður seint gleymt! ReSt iN PeaCe!
|
Didda... Já! Ég er líka gröð!!!!! Gestabók Fræga fólkið Arna Photo Ómissandi Velgefnar Stúlkur spakmæli Hvar er slátrið?!! gamalt og "gott" febrúar 2003 |