.:The sense of Didda:.

17 desember 2004

Ég var að...
Koma heima af djamminu.
Bibba og Sandy æði gæði voru kostulegar!!!
Við vorum bestar í karókínu
Við höfuðum besta endingar tímann
Við vorum sætastar
Við vorum mest sexy
Við vorum ,innst falskar og svo framvegis.

Það er gaman í bekkjarpartýum. mæli með þess slags vitleysu! :)

Didda @ 03:01 | |

16 desember 2004

Jólafrí...
Blóminn springa út og þau svelgja í sig snjó,
sumarið í algleymi og vika enn í jól.
Í hjarta sínu fólkið gleðst og syngur lítið lag,
því Didda er komin í jólafrí.

:,: Hæ, hó, jibbí, jei og jibbí, jei,
Didda er komin í jóóólafrí:,:

Jóni heitnum Sigurðsyni færir forsetinn,
firnamikinn árvissan og stóran blómsveiginn.
Fjallkonan í múnderingu prílar upp á pall,
með prjáli les upp ljóð, eftir löngu dauðan kall.
(pent hún les upp ljóð, eftir löngu dauðan kall. )

:,: Hæ, hó, jibbí, jei og jibbí, jei,
Didda er komin í jóóólafrí:,:

Skrúðgöngurnar þramma undir lúðrasveitarleik,
lítil börn með blöðrur, hin eldri snafs og reyk.

Síðan líður dagurinn við hátíðannahöld,
heitar étnar pylsurnar við fjölmörg sölutjöld.

:,: Hæ, hó, jibbí, jei og jibbí, jei,
Didda er komin í jóóólafrí :,:

Um kvöldið eru allsstaðar dansleikir,
að sunnan koma rándýrir skemmtikraftarnir.
En rigningin bindur enda á þetta gleðigeim,
því gáttir opnast himins og allir fara heim.

:,: Hæ, hó, jibbí, jei og jibbí, jei,
Didda er komin í jóóólafrí:,:

Didda @ 11:24 | |

15 desember 2004

Stundum vildi ég....
að ég væri samkynhneigð...
...því þá væri MIKLU einfaldara að finna jólagjöf handa kærustunni :)


...en bara stundum!

Didda @ 11:40 | |

Afmælisbarn dagsins í dag... Vignir
I dag er det Vignir Fodselsdag.
HURRA HURRA HURRA!
Han sikkert sig en gave faar!
Som hab har ønsket sig i aar, med dejlig chokolade og kager til.
Og når han hjem fra skole gaar.
HURRA HURRA HURRA!
Så skal han hjem og holde fest, for dem som kommer med som gaest.
For dejlig chokolade og kager til.

Kannski ég snedi honum skeyti í tilefnidagsins... aldrei að vita ;)

Didda @ 11:10 | |

13 desember 2004

...Ég veit ég á að vera að læra!!
Ég bara var að fá fyrsta jólakortið mitt frá danmörku
og ég bara varð óð og varð að skoða myndir frá DK.. sem ég á því miður ekki því talvan klikkaði og allt hvarf :(
Ég samt átti útrunna myndasíðu síðan ég var úti sem rann út :(
En en en .. ég bara ákjvað að borga!!!
vei vei vei
endilega skoðið ýkt skemmtilegar myndir HÉR! :)

The Icelandic Slut!!



Didda @ 23:11 | |

Fallegt skal merkja Gott
Á fimmtudaginn, daginn sem ég fór í mál og rit prófið, vaknaði égg ósköp sérkennilega..
ég labbaði inn á klósett og var að bursta tennurnar þegar ég áttaði mig á því að ég var búin að vera að fara með bæm alveg síðan ég vaknaði:

vertu yfir og allt í kring
með eilífri blessun þinni,
sitji guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni

Ég bara vaknaði með þessa bæm á heilanum, ekki amalegt það!
Greinilegt hver er með mér alls staðar, alls staðar... alla mína tíð! ;)

Didda @ 10:56 | |

Í borg Óttans...
Ég skrapp í Breiðholtskjör á fimmtudaginn
sem er kannski ekki frásögu færandi..
nema þegar ég var búin að versla og á leið heim var ég vitni að hrottalegum sambandslitum!!!

Er fólki alveg sama um hvað það gerir á almanna færi?!!

Ég kem út úr búðinni og heyri kærustuna öskra: Við skulum bara hætta saman!!! Ég þoli ekki að hitta fjölskylduna þína!!
Kærastan situr semsagt inn í bílnum og kærastinn stendur fyrir utan bílinn við opna hurðina hennar og klæðir sig úr úlpunni.
ég svo ekki kærastann beygja sig inn í bílinn þar sem hún situr... ég vissi ekki mitt rjúkandi ráð, bjóst alveg eins við að kærastan fengi einn á'ann.
En svo heyri ég kærustuna öskra: Láttu mig vera!! Og hættu að eyðileggja vinnuna mína!!

Hvusslags eiginlega lýður er þetta?!!
Hvusslags eiginlega vinnu ætli hún vinni?!!
Hvusslags eiginlega fjölskyldu á hann?!!
Ég var sko ekki eina vitnið, heldur var einn maður á miðjum aldri alveg eins mikið hlessa og ég.
Svona nokkuð sér maður sko ekki á miðjum degi og fimmtudegi á Egilsstöðum!

Eins og þið sjáið þá nennti ég ekki að læra og ákvað þessa vegna að hafa þetta mjöööög litríkt og fallegt og fann myndir af öllum hetjum sögunnar!!

Didda @ 01:21 | |

11 desember 2004

Enn þá bara lítil stelpa...
Þetta var úppáhaldið mitt
Þetta var mesta uppáhaldið mitt
Þetta þótti líka flott.. átti samt aldrei svona, en það var draumurinn

Hvað hétu litlu plastkallarnir sem... með bleik og blá hár...
Við vorum ALLTAF að leika með þannig og Sigrún fékk meira að segja tívoli og bóndbæ!!
Sá sem veit hvað ég er að meina.. endilega látið mig vita... :)

Didda PÍNKUlitla

Didda @ 01:05 | |

09 desember 2004

2 próf búin - 2 próf eftir
Var í mál og rot í dag og er alveg komin í þrot.
Bókhlaðan kl 08.00 á morgun svo það er eins gott að fara að sofa ef ég ætla að geta sofnað ;)

Sjáumst á morgun, krakkar mínir!

Didda @ 19:30 | |

08 desember 2004

Afmælisbarn dagsins í dag...

I dag er det Hófí Fodselsdag.
HURRA HURRA HURRA!
Hun sikkert sig en gave faar! Som hun har ønsket sig i aar, med dejlig chokolade og kager til.
Og når hun hjem fra skole gaar.
HURRA HURRA HURRA!
Så skal hun hjem og holde fest, for dem som kommer med som gaest.
For dejlig chokolade og kager til.

Didda @ 21:38 | |

Nýjasta nýtt!!
Það er búið að hanna ný bílbelti sem eru búin að vekja mikla lukku í nágrannalöndunum og hafa slysum farið ört fækkandi....

Didda @ 17:44 | |

07 desember 2004

...ég hef heldur aldrei áður...
...átt mannlega vekjaraklukku - sem gengur ekki undir nafninu Pabbi.

Jújú, hún Erla hefur séð um það síðusta daga að koma mér á lappir...
....og það meira að segja alveg óumbeðin!
Ég hef nú reyndar heyrt María að hafi átt einhvern þátt í því líka..

Ó hvað þessar stúlkur eru farnar að þekkja mig of vel! Vita hvenær ég er að sofa yfir mig og alles..
Ætli þetta séu ekki skilaboð um að ég eigi að fara að vaaaakna fyrr og drruulla mér á fætur ;)

Takk stelpur! Án ykkar hefði ég örugglega sofið prófið frá mér!

Didda @ 23:22 | |

Ég hef aldrei áður....
...farið í sturtu kl. 04.00
...lært í 12 klst. samfellt
...sofið yfir mig í próf
...staðið nakin næstum því frammi á stigagangi
...fengið mér spælt egg og brauð og tómatsósu kl. 04.19
...farið að sofa kl. 03.15 og farið á 04.00
...fengið jafn vonda pulsu og ég fékk í dag
...skipað manninum mínum að fara að sofa
...bloggað um nákvæmlega ekki neitt!
...Nei það er reyndar lýgi... ég blogga alltaf um ekki neitt!

Didda @ 04:16 | |

05 desember 2004

a Blast from the Past...
Þið munið aldrei geta hvern ég rakst á úti í sjoppu!!
....engan annan en Jóa Ragga...!!!! Við það rifjuðust sko upp margar minningar.
En spurningin sem heltók huga minna var er ég og Jói Raggi grannar?!!!!

Didda @ 13:56 | |

X-D fyrir Didda..!
Ég er búin að kjósa og þar með tryggja mér inngöngu í bloggkeppni Þórunnar og Sigrúnar.
Áfram Didda - Áfram Didda...!!!
Það væri nú hentugt ef Þórunn héti Svanhvít því þá gæti bloggkeppnin borið nafnin "S-in þrjú berjast upp á líf og dauða" ... já, eða eitthvað annað álíka töff..

Þar til næst...
...Verið hress - Borðið kex - Klukkan Sex

Didda @ 07:34 | |

Kæri Guð.

Nú er ég búin að vera alveg afbragðs stúlka og er foreldrum mínum til sóma.

Undanfarna daga hef ég lært eins og óð kona, og lít ég nú veröldina með nýjum augum. Ég sé sólina, snjóinn og börnin með augum tilvonandi leikskólakennara.
Viðhorf mitt til umheimsins hefur einnig breyst, ég er jákvæð í garð náungans og vill allt fyrir aðra gerir til að auðvelda þeim lífið. Ég er hætt að hugsa alltaf um sjálfan mig og vildi óska að ég gæti gert meir en ég hef þegar gert. Mér varð að ósk minni og fékk óvænt peninga, ég sé það núna að ég var ekki svo illa stödd. Ég er umkringd fólki sem elskar mig og dáir. Það eru ekki allir jafnlánsamir og ég að eiga svona góða fjölskyldu.
Hvað á ég að gera, kæri guð? Ég er alveg ráðþrota.
Kæri guð, ég vona að þú standir mér og veitir mér stuðning í prófum og prófalestri.


Takk elsku Guð, þín Didda.

Didda @ 07:05 | |

03 desember 2004

Próf - Próf - Próf - og næstum dauð!

Ég geri víst ekki annað nú orðið en læra fyrir próf...
Og ef ég er ekki að læra undir próf þá er ég alveg að fara að læra undir próf
eða í pásu frá að lesa undir próf
Já, eða þykjast læra undir próf...

Í gær drap ég næstum mig, bílinn minn, bílinn sem kom á móti og þá jafnvel líka bílinn sem kom á eftir!
Ég var á svona 20!!! að beygja inn í götuna mína og þá gerðist það...
bílinn tók að slæda, svo slædaði hann aðeins meira... og þegar bílinn loksins stoppaði þá var ég komin á hina akreynina og bílinn búinn að snúast við... Jáhh... mér var sko ekki ætlað að fara heim þennan dag, takk fyrir.
Þetta var fínt, nú þurfti ég ekki að eyða tíma í að bakka og vesenast, Prins Póló sá um að redda þessu og Guð almáttugur sá um að enginn dó né slasaðist, svo ég gat bara keyrt beint af stað eins eins og ég hefði ekki einu sinni hugsað mér að fara heim... eins og ég hafi bara hugsað um að koma mér sem fyrst á dekkjaverkstæðið!

Fyrst guð reddaði þessu fyrir mig.. þá hlítur hann að geta reddað mér í þessum prófum! Hahh...! ég þarf þá ekkert að læra!!

Takk elsku guð, þín Didda.

Didda @ 11:24 | |

Didda...

Já! Ég er líka gröð!!!!!

Gestabók
Diddumyndir
Sendu mér póst
Sendu mér sms
MySpace
MSN

online

Fræga fólkið

Arna Photo
Birna
Brynja
Dagný
Einar Ben
Erla
Freydís sys
Gugga
Gúmmítúttur
Heiða
Heiðdís
Helga & co.
Hófí
Húsóliðið
Jóhanna
Kata
Lára
Lilja
Lísa
Nanna
Sigga Fanney
Sigga Hulda
Sigrún
Sigrún Sverris
Valur
Þóra
Þórunn sys
Þórunn önnur

Ómissandi

Velgefnar Stúlkur
B2.is
Skólinn
Mogginn

spakmæli

Hvar er slátrið?!!

gamalt og "gott"

febrúar 2003
mars 2003
apríl 2003
maí 2003
júní 2003
september 2003
október 2003
nóvember 2003
febrúar 2004
apríl 2004
maí 2004
júlí 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
mars 2007
apríl 2007
júní 2007
júlí 2007
september 2007
október 2007
nóvember 2007
desember 2007
maí 2009

body>