.:The sense of Didda:. | |
31 janúar 2005 Frá því ég setti færsluna á undan inn...Er búið að segja við mig: Þið eruð skrítin (þá ég og Árni) Þið eruð vangefin (ég og Árni aftur) Þú ert klikkuð. Þú ert ekki heilbrigð. Kannski ég ætti að fara að athuga þetta með mig...! En mér finnst þetta bara fyndið ;) Hvað er gaman við það að vera alveg venjuleg... þekki nokkra þannig, ekki marga, og þau eru bara ekkert skemmtileg :) Þar til næst.... 11-11 rúlar!!!!!
![]() The 11-11 Wonder Woman.. Til þjónustu reiðubúin! ![]()
![]() Árni heldur að það sé töff að vinna í 11-11 og þess vegna vildi hann líka!!! :) ![]()
30 janúar 2005 Eins og þið hafið kannski tekið eftir er ég haldin einhverri fortíðar þrá, mikið væri það nú gott að vera aftur orðin 10 ára.Ég myndi nú samt vilja hafa hann árna hjá mér... verst að hann væri þá 8 ára!!! Guð minn góður hvað ég er klikkuð... get ekki einu sinni fundið mér mann á mínum aldri, djöfull hlít ég að vera barnaleg ;) ... Já, eða Árni bara kallalegur... hehe
Fortíðardraugar Sigríðar...
Ekki þurfti Sigrún að eyða mörgum orðum í sannfæringu og er ég ekki lengi að samþykja það að hún klippi mig, bara aðeins að jafna þetta, gera það fínna!
Mín skoðun: Aldrei – Aldrei klippa litlu stelpurnar ykkar stutt hærðar... nema þið viljið að þær fari að bera sig að neðan mjög ungar!
26 janúar 2005 Á Egilsstöðum góðu heldur kvenfélagið Bláklukka árlega jólabingó fyrir almúgan.Á yngri árum var þetta toppurinn á tilverunni, svona rétt fyrir jólin, og var bingóið mikið tilhlökkunarefni mörgum vikum fyrir bingóið. En eftir því sem árin liðu og ég varð eldri varð þetta minna og minna spennandi, skil nú ekki afhverju. Það er ekki alveg að tilgangslausu sem ég er að segja ykkur þetta, því akkurat þegar ég var búin að missa allan áhuga á jólabingói bláklukkunnar er Freydís litla sys komin á bingóaldurinn. Það var eitt kvöld að ég sat að snæðingi ásamt fjölskyldu minni að ég er beðin að fara með Freydísi á jólabingó bláklukkunnar. Nei er svarið og aftur nei. Eftir þræting við foreldra og fílu í Freydísi læt ég undan, en dreg þó Sigrúni með.. því ekki nenni ég ein með nokkrum litlum stelpum. Við systur, Sigrún og vinkonur systur sitjum spenntar og hlustum eftir tölum. B 15, Bjarni 15. I 27, Ingólfur 27. Bingó! Jújú, ég fæ bingó! Sendi að sjálfsögðu Freydísi upp á svið þar sem ég nenni því ekki :) Ég var nú samt ekki sú eina sem fékk bongó (damn!) þannig að það þurfti að draga... ég sit með fingur krossaða og vona að ég fá nú eitthvað gott. Freydís dregur hæsta spilið og ég vinn vinninginn, víííííhaaa! En gleðin var nú fljót að renna af mér! Til hamingju, þú hefur unnið 20 kíló af rauðum íslenskum kartöflum frá Móanesi (eða hvaðan sem það nú var)!!! Ég hélt ég yrði ekki eldri! Þetta var samt brjálæðislega fyndið og hef ég ákveðið að fara á sem flest bingó sem ég get hér eftir! Hverjir eru með í Bingó Vinabæ á miðvikudaginn?!! :) Við systurnar og Sigrún áttum mjög bágt með okkur og hlóum og hlóum og hlóum og hlóum og.... Mesta baslið var svo að koma helv.. kartöflunum út, því 20 kíló af kartöflum eru sko ekkert létt! :) Og þurftum við svo að bíða fyrir utan með kartöflunum okkar eftir að við yrðum sótta, því við vorum bíllausar!!! Auðvitað skilur maður bílinn eftir heima þegar maður fær óvænt skrilljón kartöflur gefins! :) Ekki nóg með það að ég hafi unnið kartöflur í bongói... heldur var ég búin að vinna allan daginn uppi í Vallanesi að pakka inn kartöflum!!!! Líf mitt var ein kartafla þennan daginn :) Þar til næst... ....Verið hress- Borðið Kartöflur - Í öll mál!
25 janúar 2005 Ein ónefnd vinkona mín hefur verið að blogga um nokkra mjög skemmtileg og spaugileg atvik sem hafa gerst í hennar lífi...
Við hefðum semsagt ekkert þurft að standa í þessum veseni í hálftíma því foreldrar hennar voru hvort eð ekki heima!!! Ég hefði gjarnan viljað sjá þetta... en við komumst víst aldrei að því hvort Þórhallur og Sibba hafi setið við gluggann þetta kvöld!
Þar til næst...
Endilega takið þetta próf ... ég er alveg á mörkunum en rétt slapp! Munaði engu að ég væri algjör KarlKona!!!
22 janúar 2005 ![]() Guacamole slagur!! ![]()
Nú held ég sé kominn tími til blogga. Ég var búin að ákveða að nú væri kominn tími á verkfall, búin að blogga í næstum 2 ár og hef ekki fengið krónu fyrir það? Það eru nú margir sem eru verri pennar en ég og hafa fengið mikið meira borgað eftir mun minni reynslutíma. Hér með auglýsi ég eftir góðri manneksju, eða manneskjum, sem eru til í að sponsora mig. Ég þarf ekkert mikið – Bara smá fyrir bjór og öðrum nauðsynjum! Síðan síðast hefur ansi margt gerst.. Það sem mér var mikið fagnaðarefni var þegar Rósa dó! Þetta byrjaði allt með því að ég leyfði Maríu að fá varasalfa hjá mér (hvað var ég að hugsa?!!). Nei nei nei, við vorum ekki í neinu keleríi, þetta er allt úr frá varasalvanum. Það leið ekki nema einn dagur þar til ég var komin með þessar líka svakalegu hlussu á vinstri kanti efri vararinnar. Þessi blessaða hlussa fékk nafnið Rósa. Í skólanum komst Rósa af því að hún átti systir. Þessi systir hennar dvaldi á vinstri kanti neðri varar Maríu. Sú hlaut nafnið Geira. Ég reyndi hvað ég gat til að binda enda á líf Rósu, en allt kom fyrir ekki. Hún hló bara af mér og gerði mig auma í vörinni og gerði hvað hún gat til að stækka og stækka og þroskast og þroskast. Er ekki frá því að hún hafi verið orðin kynþroska, þessi “elska”. Ég var farin að stappa niður fótum og berja hausinn í vegginn þegar ég allt í einu mundi... Kardimommudropar... það á víst að vera frunsubani húsmæðranna. Vanilludroparnir gerðu það sem þeim er sögð listin ein og angaði ég það sem eftir var dagsins og næsta dag af bökunarlykt, fólk hefur eflaust spurt sig hvort ég væri farin að staupa mig á vanilludropum, því að baka það er sko ekki fyrir kynþokkafullar konu og letihauga! Rósa reyndi hvað hún gat að bjarga lífi sínu, en ég og vanilludroparnir höfðum betur... múhahaha!! Rósa ætlar samt ekki að láta alveg undan því hún hefur skilið eftir sig stórt sár, sem er þó að gróa, og ef hún fær sínu fram mun hún eflaust skila eftir ör í leiðinni. Rósa, mér finnst þú ekki skemmtileg. Viltu hætta núna, það er komið nóg!
17 janúar 2005 Afrakstur dagsins - kvöldsins og morgunsins...Haldiði að stelpan hafi ekki bara gengið berserksgangs og losað sig við gamla og löngu útgrónna fylgdarfélaga. Jú, eftir um það bil tveggja mánaða meðgöngu, ef ekki meira, ákvað ég að segja skilið við karlmennskuna í mér og raka feldinn! Er ekki frá því að mér sé bara kalt á leggjunum eftir þessa svaðilför. Þarna fóru ódýrustu gammósíur sem ég hef átt...! Morgninum var eytt í skólanum - ekkert meir um það að segja ;) Deginum var eytt í dugnað! Ég las hvorki meira né minna en heila 17 blaðsíður af heimavinnunni! Kvöldinu mun eytt með tölvunni og sjónvarpinu mínu, þar sem úlfurinn beri hefur mikilvægari málefnum að sinna... (Whaaaat!?!! Hvað á það að þýða og hvað er mikilvægari en Diddan sjálf?!!) :) Þar til næst... ...Verið hress - borðið kex - klukkan sex!
16 janúar 2005 Hvað lærði ég í gær?Aldrei senda eiginmanninn út á vídjóleigu að taka mynd nema vera búin að velja að minnsta kosti eina mynd og tvær til þrjár til vara!! Senti úlfinn minn út á leigu í gær og myndin sem ég vildi var ekki inni.. Jújú, hann hringir og spyr hvað ég vilji í staðin. En því miður hef ég bara enga í huga svo ég bið bara um "stelpumynd", þar sem ég er nú að fara að horfa ein. Beri úlfurinn stendur sig með eindæmum. Kemur heim með frábæra stelpumynd. 13 going on 30 er algjör stelpumynd. Kæmi mér ekki á óvart þó elsku bestu Freydísi þætti myndin of stelpuleg :) Myndin hefði verið frábær ef ég væri 13. En hún var nú samt sem áður mjög fyndin!!! Mæli nú samt ekki með henni. Árni fær samt stórt hrós fyrir að velja frábæra stelpumynd! :) Þar til næst... ...Verið hress - borðið kex - klukkan sex!
15 janúar 2005 Nýi bloggari vikunnar!Ég býð Maríu velkomna á lista fræga og fallega fólksins hér við hliðina! Velkomin um borð í lestina óendanlegu!!! ;) Afmælisbarn dagsins í dag... I dag er det Sigrúns Fodselsdag. HURRA HURRA HURRA! Hun sikkert sig en gave faar! Som hun har ønsket sig i aar, med dejlig chokolade og kager til. Og når hun hjem fra skole gaar. HURRA HURRA HURRA! Så skal hun hjem og holde fest, for dem som kommer med som gaest. For dejlig chokolade og kager til. Fór í Afmælispartý til Sigrúnar í gær þar var stuð og mikið gaman. Ég fór nú reyndar snemma heim úr bænum... en þrátt fyrir það var þetta ansi viðburðaríkur tími! Ég lærði til dæmis hvernig maður heilsar og heilsar ekki fólki og gerir lítið úr því í leiðinni... eða reynir það að minnsta kosti. Fannst nú samt stúlkan sem sýndi þessar listir gera mest lítið úr sér en örðum :) Ég fékk allt í allt þrjár viðreynslur, sem er meira en ég hef fengið í langan tíma (var ekki metið 13 viðreynslur á kvöldi?!!!). Sá fyrsti var feitur og stór. Einn sá feitasti og stærsti sem ég hef séð í langan tíma! Kyssti mig á kinn og spurði hvort ég væri nú ekki að fara að koma!!! Næsti var frekar hallærislegur gaur sem trúlega var ekki eldri en 16! Sá þriðji spurði mig bara hreint út hvort hann mætti ekki koma heim með mér, fyrst ég væri nú hvort eð á leið heim!! Hvað er málið með unga herra í dag? Þar sem ég er nú hálfgift kona veit ég lítið um svona mál... en þurfa menn ekkert að leggja sig fram við að ná í stelpur... eða var ég bara svona svakalega óheppin með viðreynslur? :) Þar til næst... ...Verið hress - Borðið kex - Klukkan sex!
14 janúar 2005 The sense of YogaVið stöllurnar (Eg, María, Erla og Linda) skelltum okkur í yoga! Já, þú last rétt...! Þetta byrjaði þokkalega, salurinn fylltist af fólkið af öllum stærðum og gerðum.. Ég er samt ekki frá því að við höfum lækkað meðalaldurinn í salnum um töluvert mörg ár!! Tíminn byrjaði og um leið byrjaði aftasta röðin að flissa. Við skulum anda á óma. Anda inn og "óóóóóóóómmmmmm" það var bara fyndið og átti ég, ásamt vinkonum mínum erfitt með mig, munaði litlu að ég hefði látið allt flakka og sprungið úr hlátri... en nei, það er bara MARÍA gerir svoleiðis! :) Mér leið eins og ég væri ótrúlega góð, komst í engisprettuna, höfrunginn, fiskinn og náði meira að segja að grípa um ristina á mér (meira en sumir... múhahaha). Ég meira að segja komst í axlastöðu, ég bara nennti því ekki!!! Við skulum anda inn um nedið og út um munninn... inn og HVISSSSSSS heyrist í gamla kallinum í stuttu buxunum þarna í fremstu röð og lá við að aftasta röðin léti lífið af völdum flissis!! (fliss um fliss frá flissi til flissis?!!). Ekki nóg með að kallinn í fresmtu röðinni væri með geysilega kraftmikla og hljóðfagra fráöndun, heldur var kona, örugglega konan hans, alveg að fá það. Ahh ahhh ahhh... heyrðist ótt og títt í konunni sem virtist leggja sig alla fram við stunurnar! Og ég vildi svo sannarlega að ég hefði fengið jafn mikið út úr þessu Yoga og hún ;) Það sem ég átti í mestu basli við, fyrir utan að reyna að flissa ekki, var að halda augunum lokuðum! Ég var alltaf aðeins að kíkja á hina.. oftast sá ég þó bara nærur!! Konan fyrir framan mig var í ansi gegnsæum buxum... en það var allt í lagi, nærurnar voru stórar og hlífðu vel.. svo mér varð ekkert of meint af! En í heildina lærði ég mikið. Yoga er ekki bara fyrir grænmetisætur og aðra sérvitringa. Yoga er fyrir húmorista og aðra sem vilja rækta líkama og sál á auðveldan og góðan hátt Ég er húmoristi og vill rækta líkama minn og sál og sem auðveldastan og góðan hátt!! Heyr heyr fyrir Yoga!
09 janúar 2005 ![]() Víha Víha! Ég er Mr. Funny! ;)
brought to you by Quizilla Eins og kannski sést... Þá hef ég ekki mikið að gera um þessar mundir. Búin að pússa og þrífa ALLA íbúðina og gera allt sem góða húsmæður eiga að gera, s.s. elda og þrífa og elda og þrífa og vaska upp. En eins og þið kannski vitið þá var ég lítið meira en korter að þrífa íbúðina... segi svona, en ekki mjög lengi allavega ;) Hef ég mér til dundurs fundið ýmsa (mis) skemmtilega leiki á netinu mér til dundurs... Ef þér leiðist þá á ég ráð við óráði hverju!
Þar til næst...
...Verið hress - Borðið kex - Klukkan sex!!!
08 janúar 2005 Ég held ég sé að verða craaaazyVar bara að leika mér og fann þetta! Þetta er greinilega eitthvað fullorðins... athugið að þið þurfið að klæða hana úr áður en þið klæðið hana í!
07 janúar 2005 Ef þér leiðist....Þá getur þú klætt Jesús í föt Mér fannst það allavega mjög gaman ;) ![]()
06 janúar 2005 Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla!!!!Í fyrri nótt dreymdi mig Rúnu Gömlu Kjerúlf á einhverju svakalegu hözzleríi. Það var svosem ekkert leiðinlegur draumur þar sem ýmislegt fyndið fór fram, en ekki drauma draumurinn. Í nótt dreymdi mig að Heiða bekkjarsystir mín væri að stela af mér þvottavélinni. Þessi draumur reyndi mikið á þar sem ég fékk enga hvíld... var allan drauminn að reyna að ná þvottavélinni aftur! Djöfull var ég orðin þreytt á helv.. lygunum í henni Heiðu, alltaf náði hún að leika á mig!! Svo er ég komin með frunsu, djöfull byrjar árið ekki vel draumalega og frunsulega séð! :( Þar til næst... ..Verið hress - Borðið kex - Klukkan sex!
05 janúar 2005 Fór heim í frí – Komin heim úr fríi Ferðin frá Reykjavík og austur til Egilsstaða var sú alskrautlegasta sem ég hef farið á allri minni lífstíð! Svona leit ferðin út, ef hún hefði verið skráð á blað... Vaknað kl. 07.00 við þann vonda draum að við hjón áttum eftir að pakka niður og ganga frá íbúðinni... og leggja átti í hann kl. 08.00
Neeeenni ekki meir, ég bara neeeennni ekki meir (sungið við hvaða lag sem er).
|
Didda... Já! Ég er líka gröð!!!!! Gestabók Fræga fólkið Arna Photo Ómissandi Velgefnar Stúlkur spakmæli Hvar er slátrið?!! gamalt og "gott" febrúar 2003 |