.:The sense of Didda:.

25 nóvember 2005



Við kærusturnar ákvaðum ALDREI ÞESSU VANT að panta okkur pizzu í tilefni þess að það er Idol partý hjá okkur! Haldiði ekki bara að starfsmenn Dominos hafi flýtt sér svo mikið að þau gleymdu að skera pizzuna!! Þannig að það dugði ekkert annað en gamla lagið og þurftum við að nota búrhníf alla okkar krafta við að skera pizzuna.
Dominos má þakka fyrir að við lenntum í þessu en ekki einhver annar, því okkur fannst þetta ógurlega fyndið og höfðum gaman að!!
Við þökkum guði og stöð 2 fyrir idol, því það er okkar eina afsökun fyrir því að við erum ekki að læra. Maður lærir nú að bjarga sér þó maður sé ekki áskrifandi af stöð 2. Maður einfaldlega bíður þar til fyrri hlutinn er búinn og þá horfir maður á frammistöðu keppenda á idol.is, en þar er reyndar bara boðið á ca. 15 sekundu brot frá hverjum keppenda. Síðan stillir maður á stöð 2 og horfir á úrslitin rugluð!!!

Maður verður bara að bjarga sér!!!

Didda @ 22:16 | |

Ég veit - Ég veit... ég er algjör kelling...
en nú fer ég sko að gráta... lesið þetta og ef þið erum eins miklar kellingar og ég þá grátiði líka!!!

Didda @ 12:40 | |

22 nóvember 2005

Þetta finnst mér mjög fyndin auglýsing, endilega hafið kveikt á hljóðinu!! :)

Didda @ 14:28 | |

Dear Sigríður Harpa,

we have logged your IP-address on more than 30 illegal Websites.

Important:
Please answer our questions!
The list of questions are attached.


Yours faithfully,
Steven Allison

*** Federal Bureau of Investigation -FBI-
*** 935 Pennsylvania Avenue, NW, Room 3220
*** Washington, DC 20535
*** phone: (202) 324-3000


úúúúúúúú..... bara með FBI á hælunum, hehe :)

Didda @ 11:32 | |

20 nóvember 2005

Við Sigrún vorum í ropukeppni - já já, við erum soldið spes... en við vitum það nú alveg fyrir!!
Jæja, rétt eftir að ég var búin að taka síðasta ropið, sem var glatað, þá kemur eitt rop alveg upp úr þurru! og það rop var sko alveg rosalegt, ekkert frat þar á ferð!! Og þegar Sigrún sér svipinn á mér þá þurfti enginn orð til að útskýra hvað ske hefði í ropinu!!!

Allavega... Sigrún, ég held ég beili á prumpukeppninni miðað við hvernig þetta fór!!!

Didda - ropumeistari Rauðalæks!!

Didda @ 19:02 | |

1. Hvað er klukkan? 12.27
2. Hvaða nafn er á fæðingarvottorðinu þínu? Sigríður Harpa Benedikstdóttir
3. Hvað ertu kölluð/kallaður? Didda, Bidda, DiddaPidda, Diddus, Diddos og sumir sem vilja vera óþolandi segja Sigga
4. Hvað voru mörg kerti á síðustu afmæliskökunni þinni? Ég fékk nú ekki einu sinni afmælispakka.. hvað þó köku með kertum!
6. Hár ? Ljóst
7. Göt? Neibb
8. Fæðingarstaður? Landsspítalinn í Reykjavík
9. Hvar býrðu? Reykjavík
10. Uppáhaldsmatur? Jólamatur
11. Einhvern tíman elskað einhvern svo mikið að það fékk þig til að gráta? Jajaja...!
12. Gulrót eða beikonbitar? Bæði betra
13. Uppáhalds vikudagur? Laugardagar eru nammidagar
14. Uppáhalds veitingastaður? Veit ekki, fer nú ekki það oft út að borða
15. Uppáhalds blóm? Baldursbrá
16. Hvaða íþrótt finnst þér skemmtilegast að horfa á? Handbolti og frjálsar
17. Uppáhalds drykkur? Flest allt sem inniheldur áfengi
19. Disney eða Warner brothers? Disney
20. Uppáhalds skyndibitastaðurinn? Subway
21. Hvernig er teppið í svefnherberginu á litinn? Ekkert, en rúmteppið er rautt
22. Hver var síðastur til að senda þér tölvupóst? Sigga Hulda
23. Í hvaða búð myndir þú vilja botna heimildina á kreditkortinu? Veit ekki, VeroModa er voðalega mikið fyrir að tæla mig til að kaupa eitthvað...

24. Hvað gerir þú oftast þegar þér leiðist? Þið sem þekkið mig vitið að mér leiðist alveg rosalega mikið... en þá reyni ég að gera e-ð skemmtilegt, fara í heimsókn eða eitthvað
25. Hvaða spurning sem þú færð fer mest í taugarnar á þér? "ertu ólétt?" hef reyndar ekki verið spurð að henni lengi... ætli það sé kærastaleysið?!! Næst þegar ég verð spurð að þessu.. þá segi ég bara JÁ! ;)
26. Hvenær ferðu að sofa? Þegar ég verð þreytt, get sofnað næstum hvar sem er svo það skiptir ekki öllu hvar ég er...
27. Hver verður fyrstur til að svara þér þessu? Æj, ég veit ekki!!!
28. Hver af þeim sem þú biður um að svara þessu er líklegastur til að svara ekki? Pass
29. Uppáhalds sjónvarpsþáttur? One tree hill, Desperate Houswifes, ANTM og svo er leiðarljós náttúrulega klassík ;)
30. Með hverjum fórstu síðast út að borða? Við María fórum í rómó dinner á Nings um daginn...
31. Ford eða Chevy? Pass!!!
32. Hvað varstu lengi að svara þessum spurningum? 40 mínútur, með öðru...

Didda @ 12:26 | |

17 nóvember 2005

Didda @ 23:24 | |

16 nóvember 2005





Take the Which Neighbour Are You? Quiz, hosted by Neighbours: The Perfect Blend.

Didda @ 23:42 | |

14 nóvember 2005

Manure is good



Didda @ 15:10 | |

Sigrún er síkvartandi og kveinandi. Það nýjasta sem hún tuðar yfir er það hversu mikin klósettpappír ég nota!! Hún segist aldrei áður hafa vitað til þess að hægt sé að eyða klósettpappír svona hratt fyrr en við hófum sambúð... ég meina, hver kvartar yfir klósettpappír?!! ;)
Ætli ég verði ekki bara að fjárfesta í einni svona, þá ætti kerlan að hætta þessu voli. hehe :)


Og ef þetta fær hana ekki til að hætta þessu suði... þá kaupi ég svona, hehe ;)



Didda @ 00:54 | |




Didda @ 00:48 | |

08 nóvember 2005

Eins og staðan...
..er í dag, þá langar mig rosarosalega mikið í heimsreisu og kærasta.

Má gjarnan fylgja saman, en þó ekki endilega í þessari röð.
Ég held að ekkert myndi toppa þá tvennu! ;)

Didda @ 20:14 | |

07 nóvember 2005

7*7

1.Sjö hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey
•Klára nám og læra meira
• Finna mér mann sem vill ala mér barn/börn (börnin koma seinna, takk)
•Vinna nóg en ekki of mikið
•Flytja til útlanda og aftur heima (ferðast)
•Skemmta mér helling en ekki yfir um
•Finna þetta eina sanna
•Læra að halda kjafti, ég kann það víst ekki!
2. sjö hlutir sem ég get
•Borða slátur með smjöri
•Skipt um dekk á bílnum mínum, alveg sjálf
•Kjaftað mig í kaf
•Gert símaöt, mjög vel!
•Dundað mér
•Kjaftað mig út úr fjarvistum í menntaskóla (og örugglega háskóla ef þess þyrfti)
•Gert ekki neitt svo tímunum skiptir... og séð svo eftir því seinna

3. Sjö hlutir sem ég get ekki
•Vakað yfir heilli vídjó mynd
•Viðurkennt að ég hafi rangt fyrir mér
•Borað í nefið með tungunni
•Klippt á mér hárið sjálf (kannski ég biðji Sigrúnu um hjálp)
•Haft stjórn á mér.. varaðndi peninga og fleira
•Verið skemmtilegt við leiðinlegt fólk
• Verið ein of lengi (of lengi er einn dagur)

4. Sjö hlutir sem heilla mig við hitt kynið
•Persónuleiki
•Bros
•Húmor
•Augu
•Persónuleiki
•Dökkur um augun og dökkt hár
•Húmor
5. Sjö frægir sem heilla
•Nicholas Cage
•Lucas í One tree hill
•Seth í the O.C
•Nicholas Cage
•Lucas í One tree hill
•Seth í the O.C
•Ólafur Ragnar Grímsson

6. Sjö orð eða setningar sem ég nota mikið
•Viltu ekki bara klessa á mig, beljan þín (í umferðinni)
•ohh...ég væri til í eitthvað gott (í rúminu)
•æji, þegiðu (í samræðum)
•Viltu hækka í útvarpinu... NÚNA! (á klósstinu)
•Sigrún, þetta er gotti í alvöru.. smakkaðu bara (í eldhúsinu)
•Bölvaður andskotinn
•Shit, úbbs, þetta var óvart, ég nenni því ekki, ég er að læra.....

7. Sjö hlutir sem ég sé einmitt núna
•Sigrún Þöll
•3 tómar kókómjólkurfernur
•Sjónvarp
•Tölvuna mína
•Rusl út um all
•Spil
•Glugga

Didda @ 00:10 | |

06 nóvember 2005

Ég hringdi og var að panta mér pizzu... og fékk þennan líka þvílíka spurningalista og m.a. spurði maðurinn: Heitiru Árni?!!!
Er ég svona hrikalega djúprödduð?!? Eða er Árni bara skrækróma? ;)

Didda @ 22:29 | |

02 nóvember 2005

Ég er að hugsa um skiptinám. Danmörk heillar. Áhugasamir hafið samband!

Didda @ 00:18 | |

Didda...

Já! Ég er líka gröð!!!!!

Gestabók
Diddumyndir
Sendu mér póst
Sendu mér sms
MySpace
MSN

online

Fræga fólkið

Arna Photo
Birna
Brynja
Dagný
Einar Ben
Erla
Freydís sys
Gugga
Gúmmítúttur
Heiða
Heiðdís
Helga & co.
Hófí
Húsóliðið
Jóhanna
Kata
Lára
Lilja
Lísa
Nanna
Sigga Fanney
Sigga Hulda
Sigrún
Sigrún Sverris
Valur
Þóra
Þórunn sys
Þórunn önnur

Ómissandi

Velgefnar Stúlkur
B2.is
Skólinn
Mogginn

spakmæli

Hvar er slátrið?!!

gamalt og "gott"

febrúar 2003
mars 2003
apríl 2003
maí 2003
júní 2003
september 2003
október 2003
nóvember 2003
febrúar 2004
apríl 2004
maí 2004
júlí 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
mars 2007
apríl 2007
júní 2007
júlí 2007
september 2007
október 2007
nóvember 2007
desember 2007
maí 2009

body>