.:The sense of Didda:.

31 mars 2006

sætur að hlusta á kiðlingana sjö

Didda @ 19:43 | |

Ég var að finna gamlar myndir
...those were the days...

...ahh good days...

Didda @ 18:35 | |

Ég vil benda ykkur að kíkja inn á bloggið hjá þórunni systir!
www.bondakonan.blogdrive.com

Þetta er sláandi!!

Didda @ 12:28 | |

30 mars 2006

Þar sem ég var hætt að sjá út um rúðurnar á bílnum mínum þá ákvað ég að þrífa hann.
Ég veit ekki hvort ég var meira pirruð yfir því að hafa byrjað að þrífa hann (því ég get nú ekki hætt með hálfþrifinn bíl) eða að ég hafi bara þrifið hann einu sinni áður í vetur!

En allavega þá er bíllinn minn hvítur, ekki grár! Ég var búin að steingleyma því!!
Hann er líka glansandi en ekki mattur!!

Ég er alltaf að komast að einhverju nýju!

Didda @ 12:42 | |

27 mars 2006

Komnar inn myndir frá laugardagskveldinu.
Það gerðist ýmislegt mis-skemmtilegt
Ég og vinkona Maríu þurftum tildæmi að þykjast vera kærustur til þess að reyna að losna við einhvern gaur - hann ætlaði sko að taka okkur báðar heim! Hann var ekki alveg að kaupa það að við værum kærustur... svo maría heimtaði að við myndum kyssast. Já, ok... hann kannski trúði því smá þá en allavega þá fannst honum þetta bara meira spennandi þá!
Ég var peningalaus, inneignarlaus, karlmannslaus og allslaus - yndislegt líf!!
En ég á bestu vini í heima sem eiga frábæra vini sem lána mér pening svo ég komist heim!
Takk Takk!
Svo eru sumir sem fíla mig misvel - þeir geta bara farið, ég fer ekki fet!! ;)
www.picturetrail.com/didda-litla
Tvær fyndnustu myndir sem ég hef séð lengi... haha


Didda @ 15:26 | |

Oh so crazy!!
Eins og flestir vita þá verð ég pínu kreisí með víni og til í (næstum) allt!

Í nótt fékk ég mér tattoo!
Það var pínu sárt og maría blés á til að reyna að minnka kvalirnar
Þetta er eitthvað sem ég held ég leggi ekki í aftur.

Didda @ 00:52 | |

25 mars 2006


i think i´m in luv!

&

Didda @ 10:52 | |

24 mars 2006

Nú er það orðið slæmt! Ég fór út í búð með 400 kallinn minn og ætlaði að versla fyrir heimilið. Ég hugsaði ekki alveg nógu langt og eyddi næstum því 200 kalli í tómatsósu. Tómatsósan er vissulega ómissandi með flestum mat.. en það eru kannski ekkert svo rosalega góð kaup þegar maður kemur heim og sér að það eru bara 2 brauðsneiðar eftir og 1 skinkusneið.
Matseðill kvöldsins er því svohljóðandi: ostur, tómatsósa, papríka og mjólk.

Það þýðir ekki að gráta Björn Bónda, heldur bíta á jaxlinn og leita lausna!!

Ég þurfti ekki að gráta lengi, því fljótlega eftir að tárinn fóru að renna fann ég gróðavæna lausn á vandanum!
Nú, á morgun er boðið til afmælis á skemmtistað einum í borginni. Ég geri ráð fyrir að þar verði múgur og margmenni (eins og er reyndar ávallt í kringum mig). Ég bjó því til drög að verðskrá fyrir kvöldið. En þetta er allt með fyrirvara um breytingar.

Verðskrá:
  • Koss = 500-1000 (fer eftir lengd)
  • Tott = 1500
  • Skyndimök = 5000
  • Einnar nætur gaman = 10.000+

Að Erlu mati er þetta allt of ódýrt. Hún heldur því statt og stöðugt fram að einnar nætur gaman með mér sé virði 25.000 krónur. En auðvitað er það vegna þess að hún þekkir það af eigin reynslu hversu dásamleg ég er í rúminu.

Áhugasamir endilega hafið samband við mig í síma eða gegnum tölvuna. Tímabóknir munu hefjast um leið og þetta verður birt.

Með von um ánægjuleg viðskipti á tímabilinu sem er að byrja, Didda.

Didda @ 15:58 | |

22 mars 2006

Í dag ætlaði ég mér að klára það sem eftir var af verkefniniu mínu. Á meðan ég er búin að eiga að vera læra er ég búin að mála þrjár myndir, laga til, þvo þvott og horfa á sjónvarpið... Þó ég sé búin að vera ofsalega dugleg þá gerist ekki neitt í verkefninu, hvur skollinn!!
Ég gleymdi líka alveg að hugsa um verkefnið og var að hugsa um eitthvað allt allt annað.

Ég var að hugsa um það þegar við Sigrún keyrðum alla leið upp í grafarvog til þess eins að fá heftara - og þegar við vorum komnar alla þessa leið þá vantaði hefti í heftarann!!

Þegar ég og Þórunn ákváðum að príla upp á svalir hjá Sigrúnu.. með þeim afleiðingum að Sigrún kom dauðhrædd út á svalir með vodka flösku í hendinni. Ekki til að bjóða okkur... nei nei, til að berja okkur með!!

Og þegar ég var að fara heim úr skólanum. Opnaði bílinn á planinu, andvarpaði og bölvaði þegar ég sá allt draslið í honum.. ákveð þó að taka saman ruslið og henda því - rosa dugleg! Jæja, þegar ég er búin að henda ruslinu og ætla að koma mér í bílinn þekkti ég mig ekki alveg... Enda búin að vera að taka til í vitlausum bíl!!

Ekki er öll vitleysan eins!

Didda @ 20:32 | |

17 mars 2006

álfar.... álfar... álfar... mig meira að segja dreymir álfa!
Ég er búin að vera með álfa þema á leikskólanum, svo líf mitt hefur snúist um álfa síðustu 7 vikur. Þessa mynd tók ég af einu barni sem er á deildinni sem ég var á.
Er þetta kannski álfur?

Didda @ 23:16 | |

14 mars 2006

Það var body-paint-dagur í gær
ég fékk æðissla flott tattoo!!


Sum börn eru æði!
Önnur ekki!

Fallegt...!!

Didda @ 20:57 | |

13 mars 2006

Heita vatnið er búið á Egilsstöðum... en samt einhverra hluta vegna fór ég í sturtu!!
Hef stundum heyrt að það sé hressandi að fara í kalda sturtu. Herre gud!! Þetta var sko ekki hressandi! Þetta verður ekki prófað aftur. birrrburrrbirrr kakakakaaaalt!!

ein létt í lok dagsins: afhverju heitir heita vatnið heita vatnið?

Didda @ 22:53 | |

09 mars 2006

Afhverju geta karlmenn ekki klætt sig í buxur áður en þeir koma til dyra?

Mín hefði verið ánægjan ef það hefði komið myndarlegur ungur maður á nærunum til dyra.
Neibb, þetta var gamall viðbjóðslegur kall sem ásótti mig í Esso í denn. Hann hefur eflaust séð mig út um gluggann og stokkið úr buxunum ... fundist þetta tilvalinn tími til að sýna mér loðnar geirurnar í gegnum gatslitnann nærbolinn.

Grrr... scooooo sexy!!

Annars auglýsi ég eftir húsnæði næsta vetur og kannski sumar. Þeir sem vilja borga leigu vinsamlegast hafið samband.

Didda - ávalt kát!

Didda @ 21:00 | |

08 mars 2006

Þá er það komið á hreint.
Mig langar ekki að vera leikskólakennari.
Ó-Nei!!

Ætla nú samt að klára þetta nám, en svo ekki söguna meir!!

Fór að hjálpa pabba mínum að lesa af rafmagninu í gærkveldi... og ég var ekki lengi að sjá að sú vinna hentar mér mikið betur en leikskólavinna.
Og örugglega betur borguð líka.
Og örugglega meiri þakklæti.

Jæja, ég allavega veit hvað ég vil ekki - þó ég sé ekki alltaf með það á hreinu hvað ég vil ;)

Didda @ 10:10 | |

06 mars 2006

Mig langar í hamingju og heimsreisu - h&h.
Þá er bara að kaupa heimsreisuna og hamingjan fylgir með... eða öfugt :)

Didda @ 23:29 | |

Ég hata þegar ég fæ ekki það sem ég vil
Og ég fæ ekki það sem ég vil
Ég er ósátt og verð það þar til ég verð sátt!

Didda @ 19:12 | |

05 mars 2006

Hér getið þið sagt mér hvernig persónuleiki ég er!!
Endilega gerið! ;)

Didda @ 17:19 | |

ÚBBS!!
Það duttu allir út af msninu mínu svo þeir sem vilja þekkja mig er bent á að tala við mig svo ég geti addað þeim inn aftur :)

Didda @ 12:01 | |

01 mars 2006

Öskudagur

Upp er runninn öskudagur
Ákaflega skýr og fagur
Einn með poka ekki ragur
Úti vappar heims um ból
Góðan daginn og gleðileg jól
Úmbarassa, úmbarassa, Úmbarassa, sa
Úmbarassa, úmbarassa, úmbarassa, sa
HEY!
------
Á öskudegi er skilda að vera í búningi...
og auðvitað fer ég eftir reglum!
Var að sjálfsögðu laaaaaaaaaaang flottust ;)
------
Það er náttúrulega bara snilld þegar 5 ára barn gengur upp að manni og segir háum rómi:
Hey þú ógeðslega töff ég er að tala við þig!
segist síðan vera að fara að kúka og biður mig vinsamlegast að skeina sér!

Didda @ 17:49 | |

Didda...

Já! Ég er líka gröð!!!!!

Gestabók
Diddumyndir
Sendu mér póst
Sendu mér sms
MySpace
MSN

online

Fræga fólkið

Arna Photo
Birna
Brynja
Dagný
Einar Ben
Erla
Freydís sys
Gugga
Gúmmítúttur
Heiða
Heiðdís
Helga & co.
Hófí
Húsóliðið
Jóhanna
Kata
Lára
Lilja
Lísa
Nanna
Sigga Fanney
Sigga Hulda
Sigrún
Sigrún Sverris
Valur
Þóra
Þórunn sys
Þórunn önnur

Ómissandi

Velgefnar Stúlkur
B2.is
Skólinn
Mogginn

spakmæli

Hvar er slátrið?!!

gamalt og "gott"

febrúar 2003
mars 2003
apríl 2003
maí 2003
júní 2003
september 2003
október 2003
nóvember 2003
febrúar 2004
apríl 2004
maí 2004
júlí 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
mars 2007
apríl 2007
júní 2007
júlí 2007
september 2007
október 2007
nóvember 2007
desember 2007
maí 2009

body>