Fannst við hæfi að skella einni fallegri mynd af fallegum systrum ...bara rétt til að lífga upp á bloggið ;)
Didda @ 13:38 |
|
05 ágúst 2006
Á bloggi þessu er ég með tengda vefsíðu sem sýnir mér öll þau leitarorð sem fólk slær inn og fær upp mína síðu. Meðal þeirra leitarorða sem hefur leitt fólk leiðina að blogginu mínu eru...
rúnkaði honum
g blettur
stinn brjóst
selja blíðu
rúnka
kynlífsfíkill
og örugglega eitthvað fleira sem ég man ekki eftir!!! Þetta ætti ef til vill að opna augu mín fyrir því að ég þarf að fara að finna mér nýtt áhugamál. haha!
Ég fór fyrir svona rúmum mánuði í bílferð með Örnu og Val til Reykjavíkur.. þegar við vorum búin að vera á ferðinni í nokkra klukkutíma segi ég við þau skötuhjú: Hafið þið veitt því athygli að allan þann tíma sem við höfum verið á ferðinni hefur umræðuefnið snúist um kynlíf eða tengst því á einhvern hátt!! Þegar við vorum búin að fatta það hættum við (örugglega meðvitað) að tala um kynlíf... og ekki að undra að ég skildi hafa sofnað rétt eftir það og sofið alla leiðina í bæinn! :)
Um daginn í vinnunni (reyndar ekki um daginn þar sem ég er nýbyrjuð að vinna aftur eftir 2 vikna sumarfrí!!) þá varð ég allt í einu vör við það að ég varð ekkert vör lengur við börnin, þau voru eitthvað svo stillt! Eða það hélt ég. Ég rölti á svæðið þar sem börnin héldu til og fer að fylgjast með leiknum sem þau eru í, sem þeim virtist finnast mjög spennandi! Ég þurfti ekki að horfa lengi þegar ég sá að þetta var leikur sem þau höfðu lært af sjónvarpinu. Leikurinn var þannig að eitt barn (allt strákar) var með boltann og allir hinir strákarnir stóðu í röð aðeins frá. Þegar sá með boltann var tilbúinn girtu hinir strákarnir niður um sig og átti sá með boltann að reyna að hitta boltanum annað hvort á milli rasskinnanna eða í typpin á þeim!! Góður leikur!!! Mig langaði dálítið að sjá hvernig þessi leikur myndi fara... en lét skynsemina ráða að lokum og stöðvaði leikinn!!
Hvaðan ætli þeir hafi lært þennan leik? hmm...!! :)
Takk fyrir mig. Góða skemmtun um helgina. Hugsið um mig. Og skiljið eftir komment handa mér! :)